Vika eftir..
Gleðilegt nýtt ár allir ! :)
Þá er árið 2009 farið.. ár sem ég mun aldrei gleyma! Árið mitt sem skiptinemi í Argentínu. Svo margt nýtt sem ég lærði í ár, prufaði helling af nýjum hlutum og mat, kynntist fullt af frábæru fólki sem ég mun aldrei gleyma og lærði að meta hlutina heima miklu betur. Þessi ferð út er eitthvað sem ég sé alls ekki eftir að hafa gert og þrátt fyrir að þetta hafi verið erfitt á köflum, að vera alein í ókunnugu landi, mörgþúsund kílómetrum í burtu frá fjölskyldu og vinum og þar sem enginn skilur mig, þá var þetta svo mikið þess virði og mæli með þessu fyrir alla sem hafa séns á að gera eitthvað svona!
En já, ætla segja aðeins frá jólunum hjá mér.. því þau voru svolítið öðruvísi en ég hef upplifað seinustu ár..
Ég allavega byrjaði jólin vel .. 17.des náði ég einhvernveginn að lenda illa í fimleikum og koma mér í gips! Braut ekkert en læknanir vildu samt endilega troða mér í gips afganginn af dvölinni minni hérna.. frábært ! Svo meirihluta jólanna eyddi ég heima uppí rúmi að horfa á myndir því það er ekkert alltof mikið sem ég get gert svona á einni löpp.. vá ættuð líka að sjá fornaldarhækjunar sem ég fékk! ojbara.
En allavega, á Þorláksmessu þegar allir á Íslandi voru í skötuveislum og á seinasta snúningi fyrir jólin þá var ekkert um að vera hérna. Bara ósköp venjulegur dagur fyrir utan að bærinn var troðfullur sem ég skil ekki alveg því hérna eru jólagjafir alls ekki algengur siður á öllum heimilum, og ef það eru gefnar gjafir þá eru það bara allra nánustu.. Ég fór samt með fjölskyldunni í einhvern bíltúr og þau fóru með mig á safn sem var með endalausum uppsetningum allstaðar að úr heiminum af fjárhúsi Jesú. Fjárhúsið með öllu tilheyrandi er eiginlega eina sem virkilega er hluti af jólunum hérna því þetta sá ég á öllum heimilum (oftast undir jólatrénu) og flestum fyrirtækjum. Hérna er alls ekki mikill jólaandi í kringum mann.. fólk talar lítið um jólin, voða lítið skreytt, fáar jólaseríur, engin jólalög og bara já.. mjög erfitt að komast í jólastuð! Finnst jólin hérna eiginlega bara vera enn ein ástæðan til að djamma eiginlega..
En jæja aðfangadagur ! Ég svaf bara út og það var ekkert um að vera yfir daginn. Kl. 7 um kvöldið lögðum við af stað héðan og uppí sveit í mat hjá dóttur þeirra og vorum komin þangað kl. 10 (umkvöldið) og þá var matur.. voða svipaður matur og bara við öll svona tilefni, asado (grillað kjöt). Síðan á miðnætti var skálað með kampavíni, óskað gleðilegra jóla, borðað jólabrauð og sprengt flugelda. Minnti mjöög á áramótin bara. Síðan kl. 1 þá lögðum við af stað aftur í bæinn og ég fór til Lauru og gisti þar (annars fara flestir að djamma eftir miðnætti á aðfangadegi).
Á jóladegi var ekki gert neitt merkilegt heldur og hér er annar í jólum ekki merkilegur dagur.
Mánudaginn 28des var útskriftarveislan hjá bekknum mínum. La Recepcion! Í útskriftarveislunum þá eru allar stelpur þvílíkt fínar í sérsaumuðum kjólum og búnar að fara í greiðslu og allan pakkann! Og allir strákar í jakkafötum. Ég hefði verið með í þessu öllu hefði ég ekki slasað mig þannig ég mætti bara sem gestur. Mætti þangað kl. 10 um kvöldið og var á borðinu með fjölskyldunni hennar Ale, bekkjarsystur minnar. Þetta byrjaði þannig að hver og einn úr bekknum þurfti að labba eftir svona palli fyrir framan alla og í bakgrunn er val sem manneskjan hefur valið sjálf, síðan tekur einhver á móti þeim (ef það er stelpa þá venjulega pabbinn eða bróðir og síðan öfugt með strákana) og þau labba þarna einn hring og klappað og e-ð. Síðan þegar það er búið að kynna alla þá er dansað vals og gestinir fara og dansa við þá sem þau þekkja. Eftir þetta er matur (forréttur, aðalmatur og eftirréttur). Síðan voru sýndir allskonar myndir sem hafa verið teknið í gegnum árin og eftir matinn mætir meira fólk (vinir og þannig) og já bara haft gaman langt fram eftir nótt! Þetta var ekkert smá gaman allavega :)
29.des var afmælið hennar Andy systur og hún hélt afmælið sitt í einhverju stóru útisvæði með endalaust frítt áfengi og dj og bara svaka veisla. Stóóórskemmtilegt. Gestinir ekki farnir fyrren að ganga 8 þegar sólin var komin upp.. var að bíða eftir Andy á meðan hún var að ganga frá og bara í sólbaði á meðan haha. Mjög næs.
Á gamlárs þá var mér boðið í mat með fjölskyldunni hennar Lauru og það var allt í góðu fyrir minni fjölskyldu svo ég þáði það boð. Vorum hjá frænda hennar og það var fullt af fólki. Borðuðum úti, geðveikt næs í þessum hita og með smá golu til að kæla mann. Maturinn var ekki fyrren 11 um kvöldið (mjög eðlilegur matmálstími hérna) og síðan á miðnætti var fagnað, sprengdir flugeldar (ekki eins mikið og heima samt), kveikt á svona ljóshnöttum (kerti inní einhverjum pappírshnetti, minnir á loftbelg, og svo svífur þetta í loftinu, mjög fallegt), borðað ávaxtasalat (hefð hérna) og síðan skálað(ég var beðin um að fara með skálina, mjöög vandræðalegt haha) og drukkið kampavín. Eftir miðnætti fórum við Laura og vorum með vinkonum okkar bara.. oog síðan gisti ég hjá Lauru og var bara að koma heim nýlega :) Ljómandi fínt gamlárs svosöm..
En já ég saknaði jólanna heima ekkert smá. Alveg virkilega lítil stemning hérna fyrir jólunum.. en jájá.. ágætt að sjá hvernig þetta er annars staðar í heiminum!
En núna á ég bara vikueftir hérna í Formosa.. jesús minn þetta var fljótt að líða! Fer að byrja pakka núna bara og kveðja og þannig.. iiihh.. veit ekki alveg með þetta sko. mjög spennt að koma heim og allt það.. en það verður hræðilegt að kveðja fólkið hérna. mjög blendnar tilfinningar um þetta akkurat núna..
Fer semsagt héðan næsta laugardag kl. 6 um kvöldið með rútu og verð komin til Buenos Aires einhvern tímann á sunnudeginum. Þar verðum við á svona lokaskiptinemanámskeiði í 2 daga og 12.jan fer ég á flugvellinn og 13da lendi ég heima :)) gaman gaman.
Annars vona ég bara að allir hafi átt góð jól og hlakka til að hitta alla eftir rúma 11 daga!
-Sunna =)
Sumarfrí !! :)
Heyriði.. búin að vera rosa slöpp að blogga haha. Ekki búið að vera mikið að segja frá hvortsemer, lífið hefur bara verið að ganga sinn vanagang hérna í Formosa :) Bara skóli, þjálfa, æfingar, djamma og tjilla ! Skrapp um daginn í smástund til Corrientes sem er semí stór borg 2 tíma í burtu héðan, annars er ég ekkert búin að vera ferðast neitt.. bara lifa venjulega lífi hér eins og allir aðrir.. eeen núna er ég komin í sumarfrí og meira að gera og segja frá.. ætla vera voða dugleg núna og segja jafnóðum hvað ég er að gera hérna seinasta mánuðinn minn í Argentínu :)
Segja núna frá seinustu viku og dögum =)
Þriðjudagurinn 8.des var frídagur, dagur Maríu Mey og enginn skóli.. vúhú! Fór um hádegisleitið heim til Flopii og fórum ég,hún, systir hennar og svo Laura og keyrðum í hverfi sem er rétt við útjaður borgarinnar og vorum á leiðinni í eina "quinta" hjá vinkonu þeirra. Quintas eru svona einhversskonar sumarhús sem fólk á, en samt oft bara inní borginni eða rétt fyrir utan hana og þetta eru venjulega svona stórar lóðir með húsi, stórum garði, oftast með sundlaug og svoleiðis dæmi. Erum með kort til að vísa okkur leiðina í sumarhúsið hjá Anto (stelpunni sem á húsið) en vorum ekki alveg að fatta það og villtumst.. keyrðum svo einhvern malarveg sem var ógeðslegur, bara leðja og grjót og ógeð.. og já.. festumst! Hahah vorum þarna íörruglega korter að reyna losa okkur, ýta og þannig hahah. Ógeðslega vandræðalegt e-ð, allir í kringum að horfa á þessar 4 vitlausu stelpur sem kunna ekkert að losa sig hahah. Jæja svo komu einhverjir menn og buðust til að losann fyrir okkur og það tókst hahah. Allavega, eftir svona hálftíma þá fundum við þetta loksins ! Geeeeeeðveik quinta. Riiisastór lóð með sundlaug og blakvelli og fótboltavelli og risagrillsvæði og lítið vatn þarna og bara nefndu það! Vorum þarna allan daginn, borðuðum hádegismat þarna, tjilluðm í sundlauginni, í sólbaði og spiluðum blak.. aaahh æðislegt! Svo um 6 leitið fórum við svo á ströndina með fötur að þvo bílinn eftir að við festum hann (hann var ógeeeð) og svo fór ég bara heim og snemma að sofa eftir daginn =) !
Á miðvikudeginum beilaði ég á skólann (enginn að mæta þessa dagana nema fólk sem þarf að taka próf og klára verkefni) og skrapp í litun loooksins :)! svo rigndi seinnipartinn og Andy systir skutlaði mér að þjálfa og æfingu (fimleika) og svo um kvöldið fór ég í afmæli hjá bekkjarsystir minni og svo fórum við á Dubai (skemmtistaður) og já bara finasta kvöld.
Á fimmtudaginn var seinasti skóladagurinn! Svaf yfir mig og svo þegar ég ætlaði að fara þá fékk ég sms um að engum væri hleypt inn lengur (allir bunir að vera mæta svo illa og vissu að við værum bara að koma til að leika) en ja í staðin hitti ég þau þegar skólinn var búinn. Ætlaði að hitta þau á stöðinni (gömul bensínstöð þar sem fólk hittist oft til að tjilla) og já labbaði þangað og sé þá stóóóran hóp af krökkum úr skólanum; kastandi sprengjum og brennandi möppunar sínar og allir málaðir með stríðsmálningu og ég veit ekki hvað og hvað.. Kem þangað tandurhrein og ætla fara heilsa öllum þegar ég heyri "SUNNA ER EKKI SKITUG!!" og réðust aaallir á mig með málningu og klínt i fötin mín og andlitið og hárið ooog var sko ekki lengi að verða jafn skítug og hinir hahah. Svona er allavega fagnað seinasta skóladeginum hérna (á lokaári áður en þau fara öll í háskóla). Oog komin í sumarfrí vuhú !
Um kvöldið fórum við Laura í bæinn að versla og eyða pening hihi.. fórum svo sóttum pizzu og sátum svo allt kvöldið/nóttina uppá þaki hjá mér að borða og hlusta á tónlist..mjög sweet!
Á föstudaginn var afmæli Jose Luis (sonur hjónanna sem ég bý hjá) og fjölskyldan hans kom og við borðuðum góðan hádegismat í tilefni þess. Var keypt lambakjöt í fyrsta síðan ég kom hingað (mjög erfitt að finna það) og þaað var bara svona ljomandi gott (auðvitað ekkert í líkingu við það íslenska samt!) . Um kvöldið fór ég með allri familiunni í brúðkaup í Clorinda sem er bær 1-2 tíma fjarlægð héðan.. Vorum mætt kl. 9, en athöfnin átti að byrja 9:15 og eeenginn mættur. Fólk ekki stundvíst hérna haha. En jaja þetta var bara voða svipað og íslensk brúðkaup! nema kannski að í kirkjuna fara bara fólk sem þekkir brúðarhjónin vel og svo fara allir í veisluna eftirá.. Í veislunni voru bara allskonar smáréttir og þjónar að bera til borðs allt. Þegar brúðarhjónin komu þá byrjuðu þau á að dansa þarna brúðarvalsinn og eftir það heilsuðu þau öllum gestunum með kossum og teknar myndir..og já annars var þetta bara voða svipað og heima :) nema byrjaði allt miklu seinna hahah. Svo um 2-3 leitið keyrðum við aftur heim.. bara voða fínt kvöld :)
Á laugardagskvöldið var útskriftin mín í skólanum. Mættum öll um 9 leitið uppí skóla klædd í skólabúningnum (nema í skyrtu með bindi) og þarna var búið að skreyta allt voða fínt. Athöfnin var þannig að það var lesinn upp bekkjarlistinn frá hverjum bekk og þurfti maður þá að ganga framhjá öllum að sætinu manns og allir horfandi á þig (svekkjandi að heita Arnardóttir því ég þurfti að fara fyrst!). Svo var hlustað á og sungið þjóðsönginn og söng borgarinnar, kennarar og nemendur fóru með ræður og þannig. Vá þegar bekkjarkennarinn okkar fór uppá svið að fara með ræðu um bekkinn okkar þá hágrét greyið konan (mjööög tilfinningasöm) því henni finnst svo erfitt að kveðja okkur.. held ég mundi aldrei sjá svona á Íslandi haha.. en okei svo voru nöfnin manns kölluð og maður fór uppá svið að sækja svona viðurkenningarskjal eða e-ð þannig (aftur var ég fyrst, ekki kúl) og já gefið síðan fullt af viðurkenningum fyrir hitt og þetta og svo þegar allt var búið þá fórum við allur bekkurinn saman á Exxim (skemmtistaðurinn) í skólabúningnum okkar haha, það var geðveik stemning og voða gaman langt fram á nótt :)
Á Sunnudaginn lá ég bara heima í leti og fór bara e-ð út með vinkonum minum smá um kvöldið..
Jæja, á mánudaginn lá ég í sólbaði allan seinnipartinn, reyna að vinna e-ð í þessu tani sem allir eru að búast við að ég komi heim með.. gengur e-ð voða hægt hjá mér! Fór svo bara að þjálfa og æfingu og um kvöldið fór ég á útskriftina í skólanum hennar Luli með nokkrum vinkonum og eftir það fórum við heim til Luli þar sem hún hélt bekkjarparty eftir þetta.. stoppuðum bara stutt og svo fór ég heim til Emiliu að horfa á movies =)
Ooog á þriðjudaginn svaf ég út, kíkti í smá bæjarflakk og fór svo á æfingu um kvöldið..
Ooog í gær þá var ég vakin eldsnemma til að fara í sjálfboðarvinnu sem við skiptinemanir erum í. Fórum á svona dagheimili fyrir fátæk börn þar sem þeir er gefið að borða morgunmat, svo er leikið og farið með bæninar (vinna nunnur þarna) og síðan er hádegismatur og svo fara þau í skólann. Og í dag vorum við bara að leika við þau og segja þeim frá okkur og löndunum okkar. Mjög spennandi fyrir þau og skemmtilegt fyrir okkur :) ! Svo fór ég heim og borðaði hádegismat og var síðan að sýna fjölskyldu minni íslensku jólasveinana en ég svona jólaspilastokk með myndir af öllum og Grýlu.. haha svo þegar Andy heyrði að Grýla mundi éta börnin sem væru ekki í nýjum fötum á jólunum (var sagan ekki þannig annars ;$? heimtaði hún ný föt svo að mamma jólasveinanna mundi ekki éta sig. Andy er btw tvítug haha. En okei svo kenndi ég henni að spila á spil því hún kunni það ekki hahah.. Og svo lagði ég mig í siestunni, fór að þjálfa og lokaæfingu fyrir "vorsýningu" fimleikadeildarinnar minnar. Á bakaleiðinni kom ég við á litlu veitingastað og ég keypti mér grænmetissamloku (ógeeeðslega góð) og það er svo fyndið að hérna alltaf þegar ég hef keypt mér grænmetissamloku þá er skinka alltaf með (án djóks!). En já og svo bara snemmma lúlla fyrir langan morgundag :)
Í dag vaknaði ég snemma, fór í pinu göngutúr, gömlu hjúin fylgdu mér að kaupa útskriftarkjólinn minn og svo átti að vera general prufa fyrir "vorsýninguna". Kom á staðinn og þá var þjálfarinn minn fyrir utan staðinn brjálaður. Þá var hann semsagt með skjal sem hann fékk fyrir löngu sem á stóð að við ættum salinn í allan frá kl. 10 og undirritað af einhverjum.. en neinei þá var einhver "misskilningur" og mikilvægara að körfuboltaliðið mætti á sína æfingu þannig við gátum ekki sett upp áhöldin og þurftum að hætta við general prufuna. Þvílík óvirðing!! Náttla mættu allir foreldrar með börnin á svæðið og allt þetta. Alveg glaaatað! Þjálfarinn minn einmitt alveg þvílíkt þreyttur á hvernig hlutinir ganga hérna.. líka eins og oft þá getum við ekki haft æfingar því það er verið að halda veislur í salnum okkar á okkar æfingatíma.. hann sagði samt að þetta væri ekki svona í allri Argentínu, bara í norður hlutanum.. meiri indjánanir!
En allavega, kominn 17.des og er búin að vera voða lítið vör við jólin hérna! Jújú, komnar einhverjar örfáar jólaseríur í glugga og jólaskraut í búðargluggana..og búið að skreyta bæinn með ljósum og líka séð einhver jólatré heima hjá fólki sem er búið að sitja upp, en annars er alveg allt annar fýlingur hérna fyrir jólunum.. engin jólalög í útvarpinu og enginn talar um jólin og enginn eitthvað spenntur fyrir þeim eins og við alltaf á Íslandi haha. Kannski það sé útaf þau eru komin í sumarfrí og spenntari fyrir því en jólunum, ég veit ekki! Á allavega eftir að sakna jólanna heima heeeelling í ár ;$
En já ætla leggja mig núna og vera endurnærð fyrir vorsýninguna í kvöld :)
Verið endilega dugleg að fylgjast með blogginu mínu núna þar sem ég ætla að vera svo duuugleg að blogga hihi.
Bææææææææææ í bili =)
-Sunna
.. pero Bariloche es Barilo
þá er ég komin heim frá Barilo.. okei.. VÁÁ ég veit ekki alveg hvar ég á að byrja. Veit ekki hvað ég get sagt ykkur..Nema að þessi ferð var sjúúk. Það allra skemmtilegasta og erfiðastasem ég hef gert.. úff. Veit ekki hvort ég eigi eftir að geta lýst þessu eins og þetta var een sjáum til.. verður sko laaaangt blogg heeeeh.

Jæja á Sunnudeginum fyrir 2 vikum fórum við í útskriftarferðina okkar til bæjar í suður-arg sem heitir Bariloche. Hittumst heima hjá einni og héldum smá fyrirparty og fórum svo öll á "Torgið" (the park, la plaza) og þar voru 3 rútur sem biðu okkar enda 3 hópar að fara frá Formosa. Við vorum 50 í okkar hóp og öll úr skólanum mínum.. svona 20 úr bekknum mínum.. og svo var einn hópurinn vinkonur minar úr stúlknaskólanum þannig það voru aaaallir vinir mínir þarna nánast + systir mín kom með okkur þannig jaaá gat varla gerst betra! Mmm vorum 2 daga í rútunni og þessi rútuferð var sú aaallra skítugasta, skemmtilegasta og erfiðasta sem ég hef upplifað haah. Skítugasta þar sem við fórum hoppandi og skoppandi úr hitanum öll sveitt og sæt og förum innilokuð í 2 daga í rútu án þess að fara í sturtu.. ojbara. og sú skemmtilegasta vá. það náttla gilda ekki margar umferðareglur hérna og við vorum þarna nánast djammandi í 2 daga í rútunni.. allir drekkandi og syngjandi og dansandi (tók video af þessu) og að missaa sig úr gleði. ekki hægt að sofa því ef þú sofnaðir var gert e-ð ljótt við þig svo já hun var erfið þar sem ég held ég hafi sofið max 7 tíma.. jiii. stoppuðum slatta á leiðinni samt.. til að borða og fara á klósettið og þannig.. fyndið hvað maður fór léttklæddur og því sem nær dró suðrinu varð maður alltaf betur og betur klæddur hehe. aah já og svo þegar við vorum alveg að koma og vorum komin á svæðið þar sem fyrsti snjórinn var.. VÁ það var stórkostleg sjón.. enginn í rútunni hafði séð snjó áður og vá hvað það var öskrað þegar þau sáu snjóinn.. smá snjóföl hahah og þegar þau sáu fyrstu "fjöllin".. einhverjir smáhólar og þau bara vaaaaá !!! náttla enginn snjór og engin fjöll þar sem við búum.. bara sandur og hiti haha. allavega! svo komum við loksins til Bariloche :) ææææðisleg lítil borg í suður argentinu. allt útí flottum vetrahúsum og æii geðveikt krúttlegt allt. svona eins og í bíómyndunum. snjór þarna næstum allan ársins hring.. mikið af áhrifum frá evrópi þarna, löndum á borð við Sviss og Þýskaland og allt útí túristum allstaðar að úr heiminum. og þessi borg sko.. er full af útskriftarnemum allan ársins hring.. allstaðar sem þú fórst sástu glaða nema að njóta borgarinnar til botns. ALLAVEGA! vorum komin þangað um hádegi og dagurinn fór bara í að koma okkur fyrir á hótelinu, sækja vetragallan sem við leigðum, borða og smá lúr þegar við gátum.

við fórum þangað semsagt með ferðaskrifstofu sem heitir Travel Rock. fær alveg 5 stjörnur fyrir allt. þau eiga þarna einhver 5-7 geðveikt flott hótel í bariloche og á hótelunum gista bara útskriftarnemar sem ferðast með þeim þannig hótelið var bara fullt af 18 ára krökkum og starfsfólki frá Travel Rock sem reyna að gera ALLT til að gera þess ógleymanlega. og í eigu þeirra eru líka 5 skemmtistaðir.. allir sjúklega stórir og ógeðslega flottir með skrilljón ljósum og showum, geggjaðri tónlist og stórum börum og allt geeeðveikt flott. flottustu skemmtistaðir sem ég hef farið á allavega. og enn og aftur þá eru þessir staðir eingöngu fyrir okkur sem vorum að ferðast með travel rock. allt sjúklega vel planað og starfsfólk útum allt tilbúið að hjálpa þér.. læknir á hótelinu sem maður átti að fara til við minnsta hósta skiljiði.. haha já og útum aallt var fólk með sótthreinsandi fyrir hendurnar handa okkur.. á hótelinu, á skemmtistöðunum og þegar við fórum í rúturnar.. passa sig á svínaflensunni. og já svo voru geðveikt flottar rútur merktar þeim sem fóru með okkur útum aallt. svo voru með hverjum hóp 2 skemmtilegir ungir strákar frá travel rock sem fylgdu okkur útum allt og sáu um allt fyrir okkur.. með okkur fóru 2 frá Formosa sem heita Oky og Fabio.. ýkt hressir og vinnan þeirra að sjá um að við höfum það sem allra skemmtilegast allan tímann..

een áfram með söguna :) ! fyrsta kvöldið eftir að hafa komið okkur fyrir þá hittumst við öll í lobbyinu sæt og fín og fórum með rútu á skemmtistað sem heitir The Rocket. ekki skemmt mér svona vel á djamminu hérna bara aaaldrei. allir að tapa sér úr gleði fyrir að vera loksins komin þangað og iiihh. rooosalegt kvöld. svo þegar hver og einn varð þreyttur þá voru alltaf rútur tilbúnar fyrir utan sem fóru með mann aftur á hótelið. held við höfum verið þarna til 5, fórum með rútunni heim og þar beið okkar "fimmta máltíðin" .. alltaf hamborgarar eða pizzur eða e-ð feitt.. svo fór maður að sofa svona um 6 leitið og morguninn eftir komu oky og fabio og vöktu okkur kl. 8 til að fara á skíði. fórum með rútunni ógeðslega úldin uppá fjall þar sem var tekið á móti okkur. huuuge skíðasvæði með skrilljón skíðalyftum og kláfum og endalausir brautir útum allt. ég var í himnaríki! eeen nei þaðvar ekki svo gott.. náttla enginn stigið á skíði á ævi sinni svo það var farið með okkur í skíðakennslu.. það var reynar ógeðslega fyndið hahah. allir á hausnum allan tímann.. svo eftir það fengum við að fara í einhverja mini barnabrekku (Y)! jess... púað á mig fyrir að kunna svona "vel" á skíði hahah. ekki að ég hafi getað sýnt neitt í þessari litlu brekku.. en okeii þetta var fint.. eftir þetta fórum við svo í einhvern skála og fengum kakó og alfajores..mmm hvað það var gott. svo fórum við aftur á hótelið og maður auðvitað nýtti þennan klukkutima frítíma í að leggja sig og svo vorum við farin aftur. fórum í e-ð svona velkominveislu og var einhver fræg hljómsveit að spila held ég.. mm svo eftir það fengum við okkur að borða á hótelinu, beint að gera sig til og út á djammið. fórum á stað sem heitir ByPass í þetta skipti og það var svona grímuparty eða e-ð. stelpurnar í mínum hóp klæddu sig sem sjóarastelpur og strákanir sem þjónustukonur hahah. settu á sig brjóst og læti. ekkert smá sexy haa. einn var svo djarfur og rakaði á sér lappirnar..jeeb. en já svo á staðnum var svona leisershow og e-ð. geggjað show.. verst að hafa ekki náð video af því. aah veit ekki hvað ég var lengi þarna því að þetta var svona staður sem lokaði aldrei.. lokaði þegar seinasta manneskjan fór.. úff.


jæja þá var kominn fimmtudagur. aftur vakin eldsnemma og uppá sama fjall og vorum efst á toppinn í þetta skiptið og vorum bara e-ð í myndatöku, taka upp video og leika okkur í snjónum í einhverjum leikjum.. var skemmtilegara en það hljómar hahah. fórum svo aftur í skálann og fengum súpu og grillaðar samlokur minnir mig. mmm. maturinn í allri ferðinni var svoooo góður. namm. man ekki alveg hvað við gerðum eftir það.. örruglega bara á hótelið í himneska sturtu og lúr ef maður gat. fórum aftur á Rocket um kvöldið og þemað var rautt og hvítt. aftur skemmti ég mér of vel á þessum stað. klárlega staður ferðarinnar þótt hann var ekki sá flottasti.

svo var maður vakinn snemma daginn eftir og þá fórum við á skauta rétt hjá. enginn farið á skauta áður en gekk mun betur en skíðadæmið haha. náttla farið á línuskauta áður.. mm svo fórum við seinnipartinn með rútunni í skoðunarferð.. stoppuðum og tókum hópmyndir með st.bernard hundi sem er þarna og sáum e-ð sjuklega stórt, dýrt og flott hótel og svo fórum við í skógarferð. gullfallegur skógur með læk sem rann í gegnum hann. svo eftir það fórum við í súkkulaðiverksmiðju. þessi bær er frægur fyrir ógeðslega gott súkkulaði og útum allan bæ eru súkkulaðibúðir.. mm kaufti mér súkkulaði fyrir 6000 kall hahah. samt meirihlutinn til að gefa.. þannig er hefðin þegar maður fer hingað. kaupa handa vinum og ættingjum.. varla að týma því.. svo gott súkkulaði vá. um miðnætti eins og öll kvöld þá fórum við út á lífið. fórum í þetta sinn á stað sem heitir Grisu. 5 hæða staður.. vaaaá hann var huuuuge! ekki sniðugt að ætla að skreppa e-ð einn því þú týnist. ohh var samt orðin veik þannig ég fór snemma heim..


morguninn eftir kemur andy inní herbergi og aaaahhh við sváfum yfir okkur! allir farnir!!! og við hoppuðum í föt á 2 mín og hlupum niður ógeðslega spældar því þetta átti að vera skemmtilegasta dæmið af öllu. oooohh nei þá hafði hún e-ð misskilið og það var sko enginn farinn.. líka hálfskrítið að strákarnir höfðu ekki vakið okkur eins og alltaf. en okeei þá höfðum við tíma til að borða morgunmat annað en hina dagana haha. svo fór ég e-ð uppí herbergi að skipta yfir í betri föt heldur en hin sem ég henti á mig og svo kom ég niður og var að bíða með nokkrum krökkum og engin kom.. ohhh þá höfðum við misst af rútunni.. "aftur" .. haha okei er að segja frá í of mörgum smáatriðum hahaha. en flott! það var hringt á leigubíl fyrir okkur keyrt okkur á stað sem heitir "Piedra blanca" minnir mig. þar þurftum við að fara í einhverja spes rútu sem dreif fjallið því það var of mikill snjór og e-ð. og svo fórum við í stólalyftu lengst upp og gefið okkur einhversskonar rassaþotu/minisleða og rendum okkur niður einhverja 2km bratta brekku með svona kröppum beygjum og þetta var svo sjúúúklega gaman vááá!! lenti í skrilljón árekstrum og allir útí marblettum en vaaá þetta var ekkert smá gaman. vantar alveg e-ð svona á íslandi. svo á leiðinni niður með rútunni festumst við og vorum án djóks næstum oltin á hliðina niður úber brekku.. allar stelpurnar að farast úr hræðslu heheh. en vorum dregin í burtu og allt í góðu.. víj svo þegar það var komið á hótelið þá var sko lagt sig.. fengum smá opna eyðu og hun var sko nýtt (nítt?) til að sofa takk. mmm man hvað þetta var ljúfur lúr haha. svo um kvöldið dró Oky mig til læknisins og fékk einhverjar töflur og allt í góðu og svo um kvöldið fórum við aftur á Bypass.

þá var kominn sunnudagur og ferðin hálfnuð.. pæling að segja frá afgangnum í stuttu máli. mmm svaf svona klukkutíma þessa nótt og vakin kl. 8 eða 9 og þá fórum við á fjórhjól! byrjuðum e-ð að taka lítinn æfingarhring og svo fórum við á stærra svæði og hver fékk sitt fjórhjól til að stýra og fórum einhverja stóra torfærubraut. oosom! hótelið í hádegismat og seinnipartinn fórum við að einhverju fjalli og til að komast upp þurftum við að fara í einhverja trukka sem drifu.. hahah það var ógeðslega skemmtilegt. keyrt sjuklega hratt upp úber torfæruleið.. allavega! svo vorum við sett í svona beisli eða e-ð og þurftum að labba smá leið upp þangað til við komum að huge tréi og þar fór maður upp og beislið fest við svona snúru sem lá til ananrs tré og svo fjúmm! hélt maður í línuna með annari hendinni og hin hendin í beislið og svo var manni ýtt og maður renndi sér eftir línunni að næsta tré geggjað hratt í mikilli hæð. vá adrenalínsjokk! svo lenti maður á næsta tré og var festur við nýja snúru og svo flaug maður að næsta tré.. svona 5 stopp eða e-ð.. held þetta var það skemmtilegasta sem við gerðum. vá! verðið að prufa þetta. en já svo um kvöldið fórum við á stað sem heitir Genux og þemað var flúrljós eða þússt svona neon, rave dæmi. allir með skæra málningu í andlitinu sínu og í skærum fötum og svo á staðnum voru skrilljón blikkljós og sweetness! var e-ð svona show þarna.. huge beinagrind sem einhver kall stjórnaði. frekar kúl sko. og svo allir þarna "coordinardoranir" (strákarnir sem voru með hverjum hóp) söfnuðu sér allir saman og gerðu einhver spor með teknótónlistinni og allir hermdu eftir þeim og ekkert smá mikil stemning þarna.

hmm á mánudeginum fórum við eitthvað og þar var rigning.. grenjandi rigning allan daginn ooojbara. byrjuðum á að borða Asado (svona grillmatur e-ð) á flottum stað og svo fórum við að svona búri til að spila fótbolta. þá festi maður sig í svona bandi þannig þetta var eins og maður væri í fótboltaspilaborði fattiði? og útaf rigningu var þetta blaaauutt dæmi og allt útí slyddu og djúpum pollum.. og maður geegnblotnaði en þetta var samt geðveikt gaman haha. svo fórum við á hestbak og eftir það þá löbbuðum við upp semí fjall og þar vorum við fest aftur í svona beislu og rennt sér eftir beinni línu að botninum. nema í þetta skipti hélt maður sér í svona stöng og henti sér niður.. ógeðslega djörf að fara fyrst.. adrenalínsjokk enn og aftur. fórum svo í einhvern skála og þar var gæi með uppistand og sagði síðan e-ð ógeðslega sætt og það táruðust allir og knúsuðust,. nema ég. harður íslendingur jújú. en svo fórum við heim á hótel og það var frítími og ég fór með Ale vinkonu minni í bæinn og vorum e-ð að kíkja í búðir og gaman. Um kvöldið fórum við svo á stað sem heitir Cerebro og þar var aftur e-ð úber ljósashow og e-ð loftfimleiakfólk að dansa á bandi í loftinu.

jææja svo kom þriðjudagur aftur. seinasti dagurinn okkar :( ! allir dauðir úr þreytu þennan dag svo við vorum svona 8 sem fórum á það sem var seinast á dagskrá. var nú samt ekkert merkilegt.. fórum einhvert útí sveit á e-ð skemmtisvæði og vorum e-ð að keppa á milli liða í svona hanaslag með einhverjum stórum stöngum og fitnesbraut og þannig dæmi e-ð. svo þegar við fórum aftur á hótelið þá höfðum við seinnipartinn í frii og fórum niðrí bæ að skila búningunum og einhverjir að versla minjagripi og svoleiðis.. svo voru margir sem ætluðu að gera e-ð kreisý og fóru og settu á sig gat í tunguna eða fleiri göt í eyrun og einhverjir fengu sér tattú og lætii. svo vorum við bara e-ð að tjilla á hótelinu saman þangað til um kvöldið þá fóru allir og dressuðu sig voða fínt upp því við vorum að fara á kvöldkverð kertaljósanna. tókum rútu einhvert leengst á staðinn þar sem við höfðum borðað asadoið einn daginn. gengum inn og tekið á móti okkur með púnsi og þarna inni voru engin ljós kveikt heldur bara fullt af kertum útum öll borð. fengum þarna rosalega flotta 3ja rétta máltíð með rauðvíni og eftir matinn þá kemur einhver skemmtikraftur sem fer með uppistand og er að spila á munnhörpu og allskonar e-ð.. svo eftir mikinn hlátur þá fer hann að tala af alvöru. og það er fært okkur kampavín og kallinn byrjar að skála fyrir vináttunni þarna inni, fjölskyldunni sem bíður okkur þegar við komum aftur og svo fyrir þessari rosalegu viku og vá veit ekki hvað gerðist en það var spilað "over the rainbow" og það fóru allir að hááágráta. stóðu allir upp og fóru að faðma vini sína og vá andrúmsloftið var magnað. aldrei séð neitt þessu líkt. strákarnir grátandi og faðmandi hvornannan meiraðsegja. svo þegar fólk kom til mín og knusaði mig og sagði hvað því þótti vænt um mig og þakkaði manni fyrir seinustu mánuði þá gat ég ekki annað en grátið. brast í hááágrát með öllum. harða harða ég! shii svo þegar allir voru búnir að jafna sig og faðma alla þá fórum við með rútunum á Rocket í seinasta sinn. þar var maður til svona 4-5 en þá þurftum við að fara á hótelið og klára að pakka niður. fórum með töskurnar niður í rútu og borðuðum svo morgunmat og fjúmm lögðum af stað heim. jaaá það var sko sofið á heimleiðinni.. svaf í svona 35 tíma af 40. bara vaknað til að fá sér að borða í stoppunum og á klósettið. haha svo var svo fyndið við bakaleiiðina að því nær sem dró formosa var fækkað fötum.. hlýtt í elsku Formosa ! tekið vel á móti okkur þegar við komum heim og svo var haldið áfram að sofa næstu dagana. fórum svo á exxim, skemmtistaðinn okkar, á laugardaginn.. vá ógeðssvipurinn á öllum. ekki gaman að fara frá þessum glamúrdjammstöðum yfir í þetta. engin flott ljósashow, engir flottir kokteilar, ekkert brjálæði. eina sem var huggað sig við var verðmunurinn.. svona þrefalt ódýrara áfengið hérna.. söknum öll ekkert smaaaá barilo.

jæja! svo er skóli í fyrramálið.. jess.
heyrðu já. svooona var þetta þá :)! ógleymanlegt ævintýri sem ég vildi að ég gæti endurtekið. pottþétt hápunktur dvalar minnar hér.
hoppin í bólið :))) !
sjáumst eftir bara 4 mánuði! (vá hvað tíminn flýgur)
Sunna =)
einhver sem las þetta allt haha?
Que frío de mierda!
Jæææja. Varð svo ekkert úr ferðinni sem við áttum að fara í í vetrafríinu.. frestað þangað til um miðjan ágúst eða e-ð. Það er ljúft, bara lengra frí frá skólanum þá!




Á föstudaginn var ég held ég bara heima allan daginn, fór svo á æfingu og um kvöldið heim til Rubi með Lauru og horfðum á bíómyndir og drukkum maté úti garði alla nóttina. Geðveikt næs. Svo gisti ég heima hjá Lauru.
Á laugardaginn var ég heima hjá Lauru allan daginn og fór svo loksins heim um kvöldið og tók því bara rólega heima.







p.s. hefi ekkert á móti kommentum =)
Fokking svínaflensa
Okei núna er e-ð vandamál með svínaflensuna hérna og búið að loka fullt af skólum og vesen en það á ekki að loka mínum fyrren á mánudaginn. Þannig að í dag mætti ég í skólann og fór í stofuna mína og bara haa enginn mættur og ég sem er pínu sein?.. Okei þá mætti ENGINN (allir hræddir við svínaflensuna). og aðrar stelpur í öðrum bekkjum sögðu mér bara að fara heim og þegar ég var að labba útúr skólanum var kallað "hvert ert þú að fara unga dama?" og ég "uu það mætti enginn í bekknum" og hun e-ð "og? ef þú ert komin inn þá færðu ekki að fara út!" og ég bara okeii :S og fór inní stofu og þá mætti einn strakur! vorum 2 í bekknum og í öllum skólanum voru svona 30 sem mættu án djóks. Mætti enginn. Og við vildum auðvitað bara fara heim þótt við fengjum skróp. En nei, máttum ekki fara heim nema foreldrar okkar kæmu að sækja okkur og ég gleymdi símanum mínum og mundi ekki númerin heima. Fór á skrifstofuna og spurði hvort þau væru með símanúmerið heima og þá sögðu mér nei. Vá leið eins og í fangelsi. Öll hlið lokuð og læst og ekki hægt að fara út um aðaldyrnar nema í fylgd með foreldrum og máttum heldur ekki vera úti á skólalóðinni að tjilla þótt kennarinn var ekki að kenna útum við vorum bara 2 sem mættum. Svo kom umsjónarkennarinn minn og hafði fundið símanúmerið heima hjá mér og sagði að ég gæti farið og hringt i svona almenningssíma og ég gerði það en þá voru foreldrar mínir veikir heima og gátu ekki komið. Strákurinn sem mætti líka hann klifraði yfir girðinguna strax og komu frímínútur haha. Og þá var ég bara ein eftir! Kennarinn sem átti að kenna mér fór bara inná skrifstofu að spjalla og á meðan átti ég að sitja ein inní stofu og gera ekkert. Vá hvað ég var sjúklega pirruð. Aldrei leiðst svona mikið. Enginn sem ég þekkti í hinum bekkjunum mætti heldur þannig já. Þetta var oof leiðinlegt og ég mátti ekki fara heim. Svo eftir 3 klukkutíma að gera ekkert var ég úti í frímínútum þegar ég sé systur mína koma eins og ENGILL! váá hvað ég var glöð að sjá hana! neiii þá voru foreldrar mínir ekki búnir að skrifa undir e-ð blað og þessvegna mátti hún ekki fara með mig heim.. Ertu ekki að grínast! Systir mín fór þá og sótti mömmuna sem skrifaði undir þetta blað ooog loksins mátti ég fara!
Og ef ég hefði ekki verið sótt hefði ég þurft að sitja og gera ekki neitt alveg þangað til skólinn kláraðist.
Hversu asnalegt dæmi! Mátti ekki einu sinni fara sjálf og "skrópa" .. bara haldið manni læstum inni. Hata skólakerfið hérna..
Og til að toppa þetta þá ætlaði systir mín með foreldrana til læknis svo þá gáfu mér lykil til að fara heim á meðan en neii þá var það vitlaus lykill og ég læst útí! Aaa þetta var erfiður morgun!
Allavega. Ætla ekki í skólann á morgun þannig að ég er komin í vetrarfrí :D Laaangt vetrarfrí! Það verður samt hálf takmarkað fjör.. lokaað skemmtistöðunum núna útaf svínaflensunni og bannað að halda samkvæmi og svoleiðis þar sem stór fjöldi hittist. En við fáum samt að fara til Bariloche og förum eftir viku :)! Það verður GAMAN!! NEI ertu ekki að djóka. búið að fresta bariloche líka !! oohh GLATAÐA frí.
-Sunna
Sunna litla bloggar!
Jæja .. þá blogga ég :)
Haha, svo langt síðan ég bloggaði að ég man ekkert hvað ég er búin að vera að gera.. eeeheh. Reyna að rifja e-ð smotterí upp..
Heyrðu jú í Maí.. þá átti skólinn minn afmæli og var stofnað lítið klappstýrulið til að búa til atriði fyrir afmælishátíðina og ég ákvað að taka þátt. Haha það var rosa gaman.. æfingar nánast alla daga, 4 tíma í senn og plús á skólatíma. Hélt manni uppteknum.. svo í byrjun júní var hátíðin og sýndum við þetta rosa flotta atriði í klappstýrubúningum og læti :) Á eftir að henda inn myndböndum frá því einn daginn á facebook..
Hmm já. Svo byrjaði ég í fimleikum hérna! Ekkert smá gaman. Búin að sakna svo fimleikanna shii. Haha þetta er samt alveg lélegasta aðstæða í heimi.. man ég þoldi ekki aðstöðuna í egilshöll en úff.. haha pínulítill íþróttasalur með flísalögðu gólfi og örfáum, eldgömlum áhöldum. En þetta er gaman :D er á æfingum 3x í viku með hópnum og fæ að koma 2x í viku aukalega til að æfa mig sjálf.
Hvað meira.. já hérna er kominn vetur! Úff hvað það er búið að vera kalt seinustu vikur. Enginn hiti í flestum húsunum þannig á nóttunni er ískalt og á daginn líka ef það er engin sól. Ahh og í skólanum! Ískalt inni og kaldara úti. Reyndar farið að hitna smá aftur og gat farið í sólbað í þessari viku :) Ohh svo þegar það er kalt.. þá eru allir "mimimi sunnu er ekkert kalt. hún er frá íslandi! " og ég lýt á þau geðveikt pirruð að deyja úr kulda og segi þeim að þegar það er kalt þá erum við inníi í upphituðum húsunum okkar og ekki úti í kuldanum allan daginn!!
Annars er ég hálf leiðinlegt að vera að missa af íslenska sumrinu.. Allir á facebook alltaf "uti solbaði", "i sundi" , "utileiga þessa helgi" og já æii íslenskt sumar er e-ð svo æðislegt.
En jájá. Veturinn er stuttur hér. Verður aftur kominn 30 stiga hiti+ áður en ég veit af! Get ekki beðið ! :D
Einhverntímann í Maí fór ég svo með einhverjum stelpum sem ég þekki á tónleika með frægri hljómsveit í Argentínu. Tókum rútu í 2 tíma í einhvern bæ þar sem voru svona útitónleikar. Það var geeeggjað. Nema ógeðslega kalt :( vorum úti í svona 5-10 stiga allt kvöldið og yfir nóttina. Brr!! Tókum síðan rútuna aftur bara um nóttina eftir tónleikana. Þetta var ágætis tilbreyting á helgunum hérna :)
Ohh var að fatta núna um daginn að þau fara ekkert í sumarfrí fyrr en í desember. Stanslaus skóli í næstum heilt ár. Næ mánuði af sumarfríinu þeirra sem er bara yfir jólin og svo byrja ég strax í skólanum þegar ég kem heim. fer ekki í sumarfrí fyrr en næsta sumar á Íslandi :( skóli í næstum 1 og hálft ár.. ojbara. Fæ samt núna þessar 2 vikur í júlí sem verða geðveikar. 10 daga ferðin til Bariloche með öllum vinunum.. Það verður of gaman. Svo eru stelpurnar með svaka plön fyrir afmælið mitt sem er 3 dögum eftir að við komum heim.. spennt fyrir vetrafríinu já :)
Mm um daginn fékk ég pakka frá heiman :) harðfisk og nammi víj :D harðfiskurinn sló í gegn en nammið ekki hahah. Fólk fannst ekkert smá skrítið hvernig ég gat borðað lakkrís og já lakkrís inní flestu súkkulaði haha. Svo fannst þeim nammið ekki nógu sætt og mimimi..
Gaf fósturmömmu minni pönnuköku þegar ég kom hingað og ætlaði alltaf að baka pönnsur.. Gerði það svo núna um daginn í fyrsta sinn haha. Ekkert smá vel heppnaðar og fjölskyldunni fannst þær voða góðar.
Úff, svo núna er maður að sjá alla sem fóru sem skiptinemar í haust að fara. Ekkert smá hvað allir eru sorgmæddir.. Skiljanlega. Finndist erfitt að vera að fara núna hvað þá í janúar. Merkilegt hvað maður getur eignast góða vini og orðið náinn fólki á svona stuttum tíma..
Heyrðu ég ætlaði bara að láta heyra smá í mér. Blogga aftur eftir mánuð..
-Sunna =)
Hola, como estas?
heyriði.. var búin að skrifa þetta fína blogg fyrir viku en setti það aldrei á netið. hendi því inn hérna núna heheh. nenni engan vegin að sitja myndir með.. en þær eru allar á facebook!
Fimmtudaginn 17 apríl fór ég í tangótíma um kvöldið og svo eftir það þá átti semsagt ein eldri kona afmæli sem er í þessum tímum svo það var keypt samlokur og empanadas og svo kaka með dulce de leche í eftirrétt.. óttla gott!
Daginn eftir var afmæli hjá Lauru um kvöldið ooog meiri terta. Ooof góðar kökur hérna vaaaá.
Á laugarddaginn um kvöldið fór ég á einhverja tískusýningu hjá einum skólanum hérna og eftirá var svona eftirparty een það var frekar glatað. allir svo þreyttir..
Á sunnudaginn var hádegismatur með AFS. Þurfti að halda fyrirlestur um Ísland á spænsku.. það var kjánalegt.. veit alltof lítið um landið okkar. Alltaf að fá spurningar.. endalausar spurningar um allt á milli himins og jarðar og ég get aldrei gefið almennileg svör.. allavega það var meiri kaka í eftirrétt.. og fengum afgang af köku með okkur heim þannig meiri kaka um kvöldið..
Okei miiikið af köku og ennþá meiri á mánudeginum.. þá fór ég heim til Lauru, bauð mér í afgangsköku hahah.. en já það var gaman, svo komu einhverjar stelpur yfir og voru að kenna mér að dansa reggeton og alla dansana hérna. þaað var osom.
Á þri og mið gerði ég ekkert merkilegt.. tangó um kvöldin bara.. "Kalt" þessa dagana, 20 stiga hiti.. allir í skólanum klæddir í peysur og rúllukragaboli og buxur undir kjólunum ahahah.. það var samt alveg skiljanlegt.. svona skýjað og rigning inná milli.
Eeen já! á fimmtudaginn fór ég með foreldrum mínum og elsta syni þeirra til Paraguay :D fórum frá Formosa eldsnemma um morgunin og keyrðum í 2 tima til borgar í Argentínu sem þau bjuggu einu sinni í, heitir Clorinda minnir mig.. lítill bær (100.000 manna) .. mm svo löbbuðum við yfir til Paraguay (annað land fyrir þá sem ekki vita) og vorum bara á markaði þar.. allt miiiklu ódýrara þar. Kaufti samt voða lítið.. En jaaá, þetta var bara fíntasta ferðalag :) Síðan bara heim og í tango og e-ð..
Á föstudagskvöldið fór ég í ræktina og svo göngutúr í miðbænum með Carlitu, um kvöldið heim til Anto og þar voru allar stelpunar og gerðum okkur til og fórumí glötuðustu veislu ever.. alveg of leiðilegt hahah.. fór snemma heim þetta kvöldið að sofa.
Á laugardaginn var gaman. Fór heim til Lúlí um daginn að drekka terere og svo komu Emilia og Laura.. og heim seinna um kvöldið að gera mig til og fór svo aftur þangað um kvöldið með Andy líka og elduðum pasta og e-ð.. svo skutlaði Andy mér til Anto og fór með henni og vinkonum hennar í einhverja aðra veislu.. það var bara voða fínt..
Allavega! Svo kom Sunnudagur.. æðiiiislegur dagur.. vá hvað ég naut hans :D ! Vaknaði um 11 leitið og fór í sólbað :) gerði mig svo til og fór í hádegismat hjá fjölskyldu Emí og Lúlí fór líka. Fengum geeðveikan grillmat namm. Beljukjöt eldað úti á brasilískan hátt á teini eða e-ð hehe. Átum yfiir okkur og svo fengum við okkur eftirrétt, heimabakað alfajor með dulce de leche.. naaamm ! Svo jaaá, tokum við seinnipartinn að jafna okkur eftir matinn.. og svo komu Laura og Andy og við fórum og tókum rúnt og fórum á ströndina í fyrsta sinn! Ekkert fallegasta strönd sem ég hef séð.. en hvítur sandur, sól og sjór er alltaf falleg sjón fyrir mér heheh. Svo fórum við í rjóður rétt hjá sem við förum alltaf í á sunnudögum haha.. bara hanga þar og drekka terere og njóta veðursins sem er alltaf 30 stiga hiti, sól og heiðskýrt :) ooog svo þegar tók að dimma fórum við uppá þak heima að hlusta á tónlist og horfa á stjörnunar .. og svo seinna um kvöldið fór ég með Lauru og Emi í göngutúr að "la costanera" (þar sem allir hanga á Sunnudögum, gata og göngustígur upp við fljótið sem liggur að Paraguay).. já og svo fórum við uppí "el mirador" sem er svona hár útsýnisturn yfir bænum.. og já svo fór ég með Lauru og einhverjum krökkum út að borða því ein stelpan átti afmæli.. og já. komin heim um miðnætti og beint að lúlla eftir langan dag :)
Þreytt á að blogga HEH :) blogga næst þegar ég hef e-ð merkilegt að segja hahhah.
Bestu kveeeðjur út ljúfa lífinu,
Sunna
Páskarnir
Semana Santa!
Jæja, þá er ég komin frá Buenos Aires :D! Örruglega það skemmtilegasta sem ég hef gert so far í Argentínu.. Þessi borg er rooosaleg!
Allavega. Ég fór þangað seinasta þriðjudag með Andy systur, vinkonu hennar Lúlí og vinkonu Lúlí sem heitir Emilia.. Tókum rútuna, 14 tímar á leiðinni.. ekki slæmt ! 
Andy, Lúlí & Emilía
Vorum komnar til Buenos Aires eldsnemma á miðvikudeginum sem var fínt! Byrjuðum daginn á að fara með töskunar okkar í pínulitlu íbúð systur Lúlíar þar sem Lúlí og Emilía gistu og svo fór hún með okkur í stóran göngutúr um borgina. 
Þær með systur hennar Lúlí (Che Chú)
Emí, ég, Che Chú & Andy
Kom mér á óvart hvað var kalt! Minnti mig á Ísland á góðum degi á sumrin hehe, kalt í skugganum en hlýrra í sólinni, samt svo erfitt að komast í sól þarna því háhýsin búa til skugga yfir öllu.. En já, í hádeginu fórum við svo á McDonalds .. engir svoleiiðis staðir í Formosa þannig það var farið þangað á hverjum degi heeh. En svo fórum við og fundum Hostelið þar sem ég og Andy gistum..Alveg í miðbænum og rétt hjá íbúð stelpnanna :D ! Kom mér á óvart hvað það var flott! Frítt internet, sjónvarp og pool.. en já vorum í herbergi með öðru fólki sem var spes. Spiluðum smá pool og eftir það lögðum við okkur, dauðþreyttar.
Seinnipartinn fórum við Andy með systur Lúlí, Chi Chú (kann ekki skrifa það hah) í rándýra verslunarmiðstöð, bara að skoða og fórum síðan á Starbucks :) Um kvöldið vorum við síðan bara á barnum á Hostelinu að spila pool og svoleiðis..
ég og Andy systir fyrir utan mollið
Á fimmtudeginum ! Vöknuðum við um hádegi og fórum út að borða, átum yfir okkur eins og alltaf .. Kíktum í einhvern Tækjasal og svo fórum við Lúlí og Emilía með lest lengst í burtu en samt alveg í miðbænum.. Fórum oft með lest e-ð, og það var alltaf ennþá í miðbænum hvert sem við fórum.. Klárlega stærsta borg sem ég hef séð. En já, kíktum á einhverja verslunargötu.. en vorum svolítið seinar því allar búðirnar lokuðu fljótlega.. Minnið ekki að gera sig heeh. Fórum í íbúðina og Lúlí og Che Chú voru að syngja og spila á gítar, báðar með geðveika rödd.. og já, út að borða einhverntimann eftir miðnætti, spilað pool og farið frekar snemma að sofa.. Oooj þetta var kvöldið sem ég sá aðra hlið af borginni.. Fátækt fólk og börn útum allt sofandi á götunni eða leitandi í ruslapokum af mat. Mjög ljót sjón..
Ég & Emí í tækjasalnum
Óskýr mynd, en þarna voru einhverjir nýbúnir að leita eftir mat í ruslinu..
Vöknuðum á föstudeginum og skiptum í ódýrara herbergi.. Strákalyktin! Herbergi með næstum 10 strákum hahah. Jæja, það var allt í lagi, eina sem við gerum þar er að sofa smá. Fórum og fengum okkur hádegismat, alveg örruglega mcDonalds heeh og tókum síðan lestina og ætluðum að fara að versla en þá var allt lokað út af það var föstudagurinn langi.. svekkjandi. Jæja, í staðin fór ég með Emilí í bíó.. ekkert bíó í Formosa .. Fórum á Gran Torino með Clint Eastwood. Mér fannst hún geðveik,, mæli með henni :) Hahah svo fórum við út að borða ! Fórum á pizzastað.. Borguðum ákveðið mikið og fengum eins margar stórar pizzur og við vildum. Nýttum það.. vorum fjórar og borðuðum 6 stórar pizzur. Frekar gott :D ! En já, um kvöldið fórum við út með nýjum vinum frá Hostelinu.. Það var sjúklega gaman :D Var kennt að dansa við allskonar latino tónlist.. verð pro að dansa þegar ég kem heim! 
ég & Lúlí að borða mcFlurry með súkkulaðioreo bragði.. naaaaamm
Daginn eftir vaknaði ég alltof snemma og Emilia kom og sótti mig og við tókum lestina einhvert til að hitta vin hennar sem er blindur og bjó í Formosa en flutti til B.A. til að fara í háskóla. Vá hann er frábær! Getur gert allt sjálfur og þekkir alla borgina .. Sér pínulítið með öðru auganu ef hann situr hlutina alveg upp að auganu en ekkert meir.. samt getur hann labbað um, tekið lestina og allt þetta án þess að nota staf eða aðra hjálp. Rosa klár, spilar á aðalhljóðfærið í tangótónlist með stórri hljómsveit og getur talað ensku og já, alveg magnað.. Fórum og fengum okkur mjólkurhristing og morgunmat með honum og svo heim til hans og hann spilaði fyrir mig á hljóðfærið sitt, man ekki hvað það heitir en það er mjög svipað harmonikku en ekki það sama! Mjög flott! 
Mmm seinna um daginn fórum við í stærstu verslunariðstöð í allri Argentínu. Aaalltof stórt ! Þetta var annars alltof dýrt eins og öll moll þarna..Emilía fór með mig í tónlistarbúð og var að sýna mér og leyfa mér að hlusta á allskonar tónlist frá suður og mið ameríku. Haha já hey, svo heyrði hún að það var einhver að spurja fólkið sem vann þarna um diska með Björk! Hún er vangefið fræg í Argentínu.. Heyri oft þegar ég segist vera frá Íslandi bara "aaah sama og Björk?" .. fólk sem veit hver hún er eeelskar hana! Sá blaðagrein í "The Rolling Stone" eftir Chris Martin á spænsku, um Björk og það stóð e-ð:
"Kannski eru það virku eldfjöllin, saltfiskur en e-ð er það. Allt fólkið er óvenjulega fallegt og allir kunna að syngja, sérstaklega Björk. Röddin hennar er svo persónuleg og hefur einstaka liti" 
Man ekki meir en þetta var gaman að lesa. Allavega, síðan fórum við á Hostelið og Lúlí og Emilí í leikhús.. vorum bara að hanga þar með hinum strákunum sem voru þarna. Það var mjög gaman. Þeir voru frá öllum heimshlutum. Einn frá Bandaríkjunum sem var að læra í annari borg í Argentínu, nokkrir aðrir eins og við sem eru frá Argentínu en eru bara í fríi, einn frá Gwatemala sem var bara einn að ferðast, einhverjir frá Ástralíu, Sviss og öðrum löndum í s-ameríku. Töluðum ýmist á spænsku eða ensku.. sá þarna hvað það er gaman að kunna þessi tungumál til að geta talað við fólk frá öðrum löndum..Tal-enskan mín er orðin mun betri síðan ég flutti hingað og já spænskan mín er kannski ekki eins góð hehe, get samt bjargað mér svona semí þegar ég þarf að tjá mig. En talaði samt mest ensku þarna sem var æðii! Elska að fá frí frá spænsku og geta sagt það sem ég vill, allavega inn á milli! En um kvöldið spiluðum við smá pool og síðan fórum við á stærsta skemmtistað sem ég hef farið á! Það var geeeðveikt gaman.. óvenju mikið spilað af evrópskri danstónlist, heyrist venjulega mest af latino tónlist..
ég & Myron frá Guatemala
Svo kom sunnudagur. Gleðilega páska! Pökkuðum niður, röltum um borgina í síðasta sinn, kvöddum og fórum svo með rútu heim um 7 leitið og vorum komnar kl. 10 á mánudagsmorgni heim eftir langa rútuferð..
ég á stærstu breiðgötu í heimi held ég

Sést betur hvað hún er stór þarna.. lentum næstum fyrir bíl þarna hahah..fólkið fyrir framan okkur var að labba yfir og við héldum að það væri grænt.. en svo var ég bara hmm something is not right? og leit á ljósið og þá var það rautt og sagði "crap" og leit á bílana sem brunuðu í áttina að okkur.. öskruðum allar (ég,lúlí,andy) og vissum eeekkert hvað við áttum að gera ahahah. sé þetta gerast í slowmotion, litum í allar áttir (vorum í miðjunni) og bara fokk where to go where to go.. og enduðum á að spretta til baka og rétt sleppa lifandi :D pössuðum okkur sko að tjékka hvort það væri ekki örruglega grænt ljós öll næstu skipti hahah..sjokkið sem við fórum í eftirá :')
Þetta var rosa gaman og ætla klárlega aftur þangað einn daginn ..
En já, annars er gott að vera komin aftur heim í hitann í Formosa sem er btw, heitasti staðurinn í allri Argentínu miðað við veðurfréttinar !
Annars eru plönin fyrir næstu daga að fara losna við þessa bumbu sem ég fékk í Buenos Aires. Oh boy hvað við átum mikið!! Ræktin, út að hlaupa, íþróttatímar og tangó!!! Síðan er planið að fara taka gítartíma hérna :) Prufa allt sem hægt er á þessu ári held ég bara!

En vona að allir hafi átt gleðilega páska!!!
-Sunna
Nýtt blogg.. víj
Jæja, tími til kominn að segja frá síðustu dögum :)
Fór til Reconquista í útileigu með öllum AFS skiptinemunum frá Reconquista og Formosa seinustu helgi :) Tókum rútu kl. 1 á föstudegi og um 7 leitið stoppaði rútan einhversstaðar og hleypti okkur út.. vorum að búast við stórum AFS fána og fullt af fólki að taka á móti okkur en neii. vorum við ekki á vitlausum stað haha. alveg bara útí buska.. Það bjargaðist, einhver kona sem kom og sótti okkur og fór með okkur á réttan stað. Stórt svona sveita e-ð. Kallast campo á spænsku.. Stórt land í einkaeign með 2 stórum sumarhúsum og stór garður og tré og sjúklega flott svæði. Tjölduðum þar, var í tjaldi með þýsku stelpunum frá Formosa, Carminu og Tabeu. Og já, frekar relaxing helgi. Vorum bara að borða mat, spila á spil og gítar og syngja og bara kynnast :) ! Og svo inná milli einhverjir leiðinlegir fyrirlestrar.. en þetta var æði. Sjúklega gott veður allan tímann og góður matur. Aah já, sáum svona huge ass frosk hoppandi í grasinu og ég fékk að takann upp :D hahah það var ógeðslegt.. slímugur og hjartað á froskinum eða öndunin á fullu.. spes tilfinning! Mm oj svo var líka allt morandi í pöddum og öllum gerðum af flugum.. sæll! Þegar það var dimmt og við sátum úti undir ljósi, þá var endalaust af þessum ógeðum.. haha einhver ný gerð af flugum sem ég sá, heimsku flugur alltaf klessandi á okkur og rotuðust..öskraði eins og algjör auli fyrsta kvöldið en svo var þetta farið að venjast -ullabjakk.. Jám svo fórum við krakkanir frá Formosa til borgarinnar Reconquista og skoðuðum mannlífið, mjög svipað og hérna á sunnudagskvöldum. Allir hópast saman á einum stað, þarna í aðalgarðinum/torginu og hjá okkur við strandarlínuna.. Þar er alltaf allur bærinn niðurkominn, drekkandi maté eða terere, og aðrir bara rúntandi hring eftir hring.. æðisleg stemning :) Já, löbbuðum ímiðbænum, fengum okkur að borða á veitingastað og tókum svo rútuna heim :) Vorum ekki komin heim fyrren um 6 leitið um morguninn þannig ég þurfti ekki að fara í skólann á mánudeginum. Vúhú !

ójá.. halda á kysstumigogégverðprins froski :D

stelpan frá Noregi, ég, stelpan frá Frakklandi :)

geeðveikur staður

ruslahaugarnir.. ógeðslegt
Jæja, þá á mánudeginum svaf ég út :) Svo eiginlega bara tjilla heima, horfa á sjónvarp og e-ð.. Nema skaust út seinnipartinn að kaupa hvíta boli fyrir skólann, því Lilian (fósturmamma mín hér) setti óvart grænan bol með hvítufötunum mínum og litaði þau 8) .. en já,, frekar leiðinlegur dagur haha..
En þriðjudagurinn var mun skárri! Þá for ég í skólann, fékk rosa góðar móttökur, ekki búin að sjá stelpunar svo "lengi" ..Eftir skóla var systir Felix (fóstupabba) í mat og fengum inpanadas (okei kann ekki skrifa það haha) .. en þetta er e-ð svona allskonar heitt gumms vafið inní "brauð" eða æii veit ekki, en Lilian ætlar að kenna mér að gera svona áður en ég fer til Íslands. Nammi gott.. Svo fengum við frosið Flan í eftirrétt .. :) Kl. 4 var svo fyrsti íþróttatíminn, erum að fara læra Aerobic þessa önnina ef ég skildi rétt (veit aldrei hvort ég er að misskilja e-ð eða ekki) .. EN já þetta var bara stuttur tími og eftir hann fór ég með Carlitu og Anto í miðbæinn og fórum að kaupa háhælaða skó looksins.. tók enga með mér eins og auli . Svoo á röltinu spurði ég þær hvort það væri hægt að lita á mér augnbryrnar hérna, því mínar voru orðnar hvítar (engin Þóra systir að lita þær).. og þær litu á mig stórum augum hahah. afhverju ætti ég að lita þær dekkri þegar ég er ljóshærð.. Fannst það stórfurðulegt.. en stoppuðu á næstu hárgreiðslustofu og tjékkuðu á því og viti menn það var hægt.. gera það greinilega ekki oft hahah.. En já, borgaði lítinn 200 kall fyrir það hahah. Mmm já svo röltuðum við bara um, kíktum á ferðaskrifstofuna sem fer með okkur til Bariloche í júlí.. omg get ekki beeeeðið ! og eftir það fór ég heim eftir mikið labb.. Vá hvað þetta var samt heitur dagr.. var að deyjaaa úr hita í allan dag þótt það var semí skýjað .. óvenjuheitt.. Fórum og kauftum okkur ís og inní ísbúðinn er alltaf ískalt, en það var þvílíkt nice að sitja þar og kæla sig.. Svo löbbuðum við út og það var eins og að klessa á vegg, bókstaflega. Of mikið af því góða held ég bara..
Svo kom miðvikudagur ! Skóli, hádegismatur..sofa.. og svo um kvöldið var fyrsti tangó tíminn minn :D vaaá hvað það var gaman ! :D fýla þennan dans..
Öss.. pabbi sem hélt að ég yrði einhver bolla þegar ég kæmi aftur heim! Fer í ræktina 3x í viku, íþróttatíma 2x í viku, labba endalausar vegalengdir hérna oog svo tangó 3x í viku :D verð í úber formi þegar ég kem aftur (H) ! Reyndar er maturinn hérna svo sætur og óhollur að það hjálpar ekki.. en saaamt ! :)
en já, það var frá 8-10 . svo dreif ég mig heim og gerði mig til, Andy skutlaði mér til Anto og rétt eftir miðnætti fórum við heim til Mauru því hún átti 17 ára afmæli.. þar voru allar stelpunar og fengum köku og svoleiðis.. svo var bara dansað eins og vitleysingar þangað til um hálf tvö þegar okkur var skutlað á Exxim (skemmtistað) og það var auðvitað sjúklega gaman.. dansað langt fram á morgun..

Frí í skólanum á fimmtudaginn einhver minningardagur útaf stríðinu í Falklandseyjum sem var einhverntímann 8) .. nýta öll tækifæri til að hafa frídaga haha.. 24 mars sl. var líka frí í skólanum útaf þennan dag fyrir löngu var þessi borg stofnuð.. svaka minningarathöfn í gangi daginn áður í skólanum og e-ð.. og já ég eiginlega bara svaf allan daginn, smá rúnt með Carminu og Andy um kvöldið og svo bara sofa snemma..
Og í gær; skóli-matur-sofa.. talaði við mömmu, pabba, þóru og berglindi á Skype.. það var gaman :) og síðan skellti ég mér í ræktina um kvöldið með stlepunum..eftir það fórum við beint á úrslitaleik í Blak í íþróttahöllinni, örruglega mörgþúsund manns.. þvílík stemning hah.. Formosa á móti einhverri annari borg.. en við töpuðum. eftir það sóttu Andy og Lúlí mig og þær sögðu mér að þær væru að fara í afmæli og ég bara okei kúl. svo keyrðu þær framhjá húsinu okkar og ég bara óó ég líka að fara? (útaf ég var ennþá sveitt í íþróttagallanum) og þær bara jájá þetta er ekki party bara pínu afmæli, þarft ekkert að skipta um föt... og ég bara já þannig. Heyrðu svo komum við á staðinn.. er ekki svaka afmælisveisla..fullt af fólki og allir fínir.. ég ómáluð, klædd í stuttbuxur og íþróttatopp.. flott þetta! :D en já, kynntist fullt af nýjum stelpum sem töluðu ensku.. ohh hvað það var gaman, fá pásu frá spænskunni í smá.. en já, mikið dansað og mikið fjör! Um 4 leitið fór ég svo með lúlí og Andy að kaupa ís í ísbúðinni haha og svo heim að lúlla :)
Í dag er laugardagur. Vaknaði um 11 leitið til að kíkja í sólbað.. það gekk ekki alveg því fljótlega var ég dregin í burtu því sólin er víst svo hættuleg á þessum tíma. Bara sólbað á milli 8-9 á morgnana og 6-7 á kvöldin .. já einmitt einmitt.. en já planið að fara í banka í dag, taka út fyrir Buenos Aires oooog hitta eina stelpu sem ég kynntist í gær, ætlum að sitjast niður og drekka terere seinnipartinn :) Og í kvöld er það Exxim með stelpunum!
Já, er sko að fýla þetta allt í botn :D ! Eeelska þennan bæ, fólkið,hitann, djammið, ferðalögin.. langar sko ekkert að koma heim á næstunni :D !
Blogga næst eftir páskafríið :)
-Sunna :)
p.s. -til í að fá komment og sjá hverjir eru að skoða.. alltaf svo mikið af heimsóknum á dag..
Bara öđruvísi :)
Jaaá, enn eitt bloggið.. Voða lítið að frétta héðan svosöm :) ! Lifið gengur sinn vanagang.. í stuttu máli sagt: skóli frá 7:30-12:30 alla daga, fer heim og borða hádegismat, horfi á tv og legg mig í siestunni.. og á kvöldin er gert e-ð skemmtilegt.. Um helgar er sofið út, farið út á lífið, rúntað og hangið á ströndinni.. svooo já, nenni engum smáatriðum núna og var eiginlega að pæla að segja frá því sem ég er búin að taka eftir núna seinustu daga.. (ekki betra og ekki verra, bara öðruvísi haha) ..
- Skólinn .. hann er já, haha. frekar tilgangslaus.. Er semsagt á seinasta ári í colegio (er frá 6-18 ára ef ég skildi rétt) og eftir það fara þau í universidad. Seinasta árið snýst bara um að skemmta sér, ekki lærdóminn.. Kennslustundinar eru 40 mín í einu og helmingurinn af þeim fer í að einhver er fenginn til að safna saman pening fyrir ljósritum (notum ekki bækur) og lesa upp, síðan les kennarinn e-ð upp spurningar sem þau eiga að svara og eru ekki með bækur til að finna svörin.. fatta þetta ekki.. Allavega.. önnin byrjar í mars, vetrafrí í júlí og útskrifumst í desember :D Og já alltaf á morgnana fyrir fyrsta tíma þá standa allir krakkanir í röðum, segja góðan daginn og svo er kveikt á lagi og horft á þegar fáninn er hífður..

Skólastofan mín hehe
Krakkanir í bekknnum..
-Fyrir utan langflest hús eru hlið og þegar fólk kemur í heimsókn stendur það fyrir utan hliðið og klappar höndum í staðin fyrir að banka .. hahah og já, flest hús eru alveg flísalögð og allir ganga um í skóm inni eins og ég var búin að segja kannski.. 
Uppá þaki heima hjá mér :) sit þarna að fá smá lit stundum..
-Umferðin hérna er spes.. bý í miðbænum og þar eru allar götur einstefnugötur þannig það tekur forever að komast á stað sem er rétt hjá.. Lítið um umferðaskilti og ljós.. nema haha, það eru umferðaljós inní hringtorg. Gangandi umferð er lægst í fæðkeðjunni og enginn ber virðingu fyrir henni. Efst eru stórir bílar eins og strætó og þannig, svo koma bílar, mótórhjól, vespur, reiðhjól og loks gangandi fólk.. Þannig maður þarf að passa sig vel þegar maður labbar yfir götur.. Enginn sem mun stoppa fyrir þér! Svo er ekkert vandamál að vera alltof margir í bíl eða á mótórhjólum.. sé daglega 2 fullorðna með 2 smákrakka á einu mótorhjóli.. Stórhættulegt.. Börn standandi laus í bílunum og 10 manns+ sem sitja aftaní á pallbílum og jaaaá! Ekki kúl.. Löggan gerir ekkert í því.. samt eru löggur á öllum götuhornum.. standa bara þarna hahah.. 
Hverfið þar sem vinkona Andyar á heima.. 
-Það eru hundar útum allt hérna.. Hver fjölskylda á örruglega amk. 2 hunda og svo eru hundar lausir útum allar götur. Koma meirað segja oft inní kennslustofu þegar hurðin er opin.. voða venjulegt bara!
-Matmálstíminn.. Stór máltíð í hádeginu, voða lítið borðað yfir daginn.. og svo er bara e-ð nasl í kvöldmatinn um 10-11 leitið.. mmm erfitt að venjast fyrir Sunnu sem er alltaf svöng,...
eeeheheh dettur ekkert meira í hug í augnablikinu !
En hérna á föstudaginn eftir viku er ég að fara til Santa Fe, 10 tíma rútuferð þangað.. er að fara með öllum skiptinemunum í Formosa.. veit samt ekki hvað við erum að fara gera.. en það verður örruglega rosa gaman ! :D Blogga örruglega ekkert aftur fyrren eftir það :) Og já, í sambandi við myndir.. þá get ég ekki sett myndir á facebook, kemur alltaf error.. svo jáá, það kemur seinna.. læt vita !
Vona að allir hafi það sem allra best :)
-Sunna
